Hönnun
Tvö fjölbýlishús ásamt raðhúsum staðsett steinsnar frá gylltri fjörunni og sannkölluð paradís fyrir náttúruunnendur á Álftanesi. Fjölbýlishúsin eru lyftuhús þar sem hver íbúð er með sér inngangi.
Í raðhúsunum er sú nýlunda að í miðju hvers húss er garður sem hleypir inn birtu, svæði þar sem hægt er að tengja við náttúruöflin og ná jafnvægi eftir eril dagsins.
Um Fjölbýlishús
- Fjölbýlishúsin eru á þremur hæðum og því lyftuhús.
- Fjölbýlishúsin samanstanda af tveimur 25 íbúða húsum þar sem fjölbreytni í gerð íbúða er mikil studió íbúðir í blandi við 3-5 herbergja íbúðir.
- Allar íbúðir eru á einni hæð með anddyri, salerni eldhúsi, stofu og íverurýmum ásamt svölum eða sérafnotareit.
- Fjölbýlishús eru staðsteypt, einangruð að utan og klædd með veðurþolinni, viðhalds lítilli klæðningu.
- Fjölbýlishúsin eru á þremur hæðum og því lyftuhús.
- Fjölbýlishúsin samanstanda af tveimur 25 íbúða húsum þar sem fjölbreytni í gerð íbúða er mikil studió íbúðir í blandi við 3-5 herbergja íbúðir. Allar íbúðir eru á einni hæð með anddyri, salerni eldhúsi, stofu og íverurýmum ásamt svölum eða sérafnotareit.
Um Raðhús
- Raðhús miðast við að notað séu efni sem þurfa lítið viðhald ásamt því að nota krosslímdar timbureiningar til uppbygginga á burðarvirki.
- Raðhúsin eru einangruð að utan og klædd með veðurþolinni, viðhalds lítilli klæðningu.
- Húsin eru sambyggð rað- og parhús, 20 íbúðir, komið er inn um aðalinngang inn í anddyri þar sem er gestasalerni og herbergi ásamt anddyrisskápum, frá anddyri er komið inn í alrými þar sem stigi bindur saman hæðir og eldhús, stofa og borðstofa eru í sameiginlegu opnu rými. Stórir gluggar veita birtu inni í stofu og borðstofu. Á efrihæð er sjónvarpshol, baðherbergi, þvottahús og herbergi. Sigi og stórir gluggar veita birtu á milli hæða um ljósgarð sem er á milli húsa.
Ljós týpa
Hér er innblástur sóttur í norræna hönnun ásamt því að ljósu litirnir tengjast yfirbragðinu sem er á CLT viðnum.
Tímalaus hönnun sem endurspeglar notagildi og einfaldleika.
Dökk týpa
Dökki liturinn skapar þægilegt og rólegt andrúmsloft og gefur skemmtilega mótstöðu við ljósa litinn á CLT viðnum.
Tímalaus hönnun sem endurspeglar notagildi og einfaldleika.
Viðtal við arkitekt:
Arnar Þór Jónsson arkitekt segir frá árherslum í hönnun húsanna og svæðisins: